top of page
hero.png

Fjölskyldutempó
Leikur að læra saman

Með FjölskylduTempó færð þú verkfæri og stuðning til að byggja upp fjórar grunnstoðir — skref fyrir skref, saman sem fjölskylda og með rannsóknir og raunverulegan árangur að leiðarljósi.

39.900 krónur fyrir aðgang að Fjölskyldutempó í 12 mánuði
Fjölskyldur í Snæfellsbæ fá
30% afslátt með kóðanum snaefellstempo

Æfingin skapar meistarann

Til þess að fjölskyldan sjái árangur er nauðsynlegt að halda tempói. Þess vegna er Fjölskyldutempó hugsað í mánuðum þar sem hver mánuður hefur sitt þema.

​

Með því að halda tempói nær fjölskyldan árangri saman.

Skemmtun

Fjölskyldan verður sinn eigin skemmtanastjóri.

Lærum saman í fjölskylduleik sem gefur gleði og hlátur.

samvera.png

Samvera

Fjölskyldan býr til einstakar samverustundir sem lifa.

Búum til tíma saman fyrir gæðastundir sem skipta máli.

studningur.png

Stuðningur

Við styðjum hvert annað sem fjölskylda og lærum saman.

Styðjum hvert annað sem fjölskylda og vinir.

Að taka virkan þátt í þroska barna – í skóla, leikjum og daglegri umgengni – stuðlar fjölskyldan að betri námsárangri, tilfinningalegu jafnvægi, ábyrgari fjármálavenjum, öruggri netnotkun og heilbrigðum lífsstíl.

Hvað er Fjölskyldutempó?

Fjölskyldutempó skiptist niður í 12 þemu og innan hvers þema eru fjórar vikur. Vikulega sest fjölskyldan saman og fer í gegnum æfingar eða leiki vikunnar sem tengjast ákveðnu þema. Eftir fjórar vikur er svo endurlit þar sem fjölskyldan fer yfir þemað og dregur saman það sem þau hafa lært sameiginlega í hverju þema fyrir sig.

​

Hvert þema tengist einhverjum af þeim fjórum grunnstoðum sem hugmyndafræðin leggur upp með.

Af hverju ætti fjölskyldan að leika og vinna saman?

Greining á yfir 30 rannsóknum bendir til jákvæðrar fylgni milli foreldraþátttöku og námsárangurs hjá börnum á öllum skólastigum – frá leikskóla til framhaldsskóla. Rannsóknir hafa sýnt að nemendur með virka og styðjandi foreldra hafa meiri metnað og betri árangur – allt frá því að fá heimaverkefni unnin í tíma til betri einkunna.

Skjaldarmerki_Snaefellsbaejar_edited.png

Fjölskyldutempó Snæfellsbæjar

Íbúar Snæfellsbæjar fá 30% afslátt af Fjölskyldutempó. Eina sem þarf að gera er að skrá sig hér að neðan og virkja afsláttinn með kóðanum snaefellstempo.

Hugmyndfræðin:

FjölskylduTempó er hannað með það að leiðarljósi að búa til skemmtilegar samverustundir fyrir fjölskylduna og þjálfa fjölskyldumeðlimi fyrir líf, leik og störf framtíðarinnar. Aðferðafræðin felur í sér að leikurinn þjálfar fjóra leikniþætti sem hafa sannarlega áhrif á möguleika fjölskyldunnar og einstaklinga til þess að vaxa og dafna. Þessir fjórir þættir eru: Félagsleikni (Social literacy), tæknileikni (Tech literacy), fjármálaleikni (Financial literacy) og heilsuleikni (Health literacy). 

ChatGPT Image Aug 21, 2025, 01_34_17 PM.png

Félagsleikni

  • Þjálfar virka hlustun, samkennd og vinskap.

  • Leyfir öllum að tjá tilfinningar á öruggan hátt.

  • Eflir samvinnu og traust með leikjum.

Fjármálaleikni

  • Kennir ábyrga neyslu og mikilvægi sparnaðs.

  • Byggir upp sjálfstraust og sjálfstæði í fjármálum.

  • Þjálfar virðissköpun og verðskilning.

Tæknileikni

  • Fjallar um ábyrga  skjástjórn, netöryggi og gagnrýna hugsun á netinu.

  • Nýtir spunagreind til að efla skapandi og skipulagða hugsun.  

  • Eflir tæknileg vinnubrögð og skilning á tækni.

Heilsuleikni

  • Þróa heilbrigðar venjur í mataræði, hreyfingu og svefni.

  • Kenna aðferðir til að draga úr kvíða.

  • Ýtir undir líkamsrækt og íþróttaiðkun sem allir geta tekið þátt í.

bottom of page